Spunasýningar
Alla miðvikudaga í Þjóðleikhúskjallaranum!
Improv Ísland hefur kitlað hláturtaugar áhorfenda í Kjallaranum frá árinu 2016 og fjöldi gesta kemur aftur og aftur, enda eru engar tvær sýningar eins. Hver sýning er frumsýning og lokasýning á brakandi fersku gríni sem verður til á staðnum. Um 30 spunaleikarar í 7 spunaliðum skiptast á að sýna ólík spunaform í hverri viku, ásamt þjóðþekktum gestum.
Miðvikudagskvöld
Á miðvikudagskvöldum kíkir þjóðþekkt fólk í Þjóðleikhúskjallarann og segir sögur úr eigin lífi sem hópurinn notar sem efnivið fyrir sýningu kvöldsins. Engin sýning er eins!
Haraldskvöld
Einn þriðjudag í mánuði eiga nýliðar Improv Íslands sviðið og sýna Haraldinn (e. Harold). Haraldurinn er eitt allra þekktasta form spunans og hefur verið sýnt um allan heim frá því það var fundið upp í Kaliforníu árið 1967. Einnig geta spunalið úr spunasamfélaginu sótt um að fá að sýna á kvöldinu. Lið sem vilja taka þátt í Haraldskvöld sendið póst á improvisland@improvisland.is
Þemasýningar
Einu sinni á önn tjaldar Improv Ísland öllu til og býður upp á sýningar út frá þemum þar sem söngur og dans ásamt gleði og gríni eru allt umlykjandi.
Nýtt fyrirkomulag miðasölu
Improv Ísland hefur frá upphafi leitast við að hafa miðaverð hóflegt svo sem flest geti notið sýninga hópsins. Almennt miðaverð í ár er það sama og í fyrra 3.500 kr. Tekjulágum gefst kostur á að greiða 2.500 kr. fyrir miðann og tekju hærri 5.500 kr.
Listrænn stjórnandi: Hákon Örn Helgason.
Improv Jam
Improv Jam Improv Ísland eru haldin nokkrum sinnum á önn.
Þar getur hver sem er sett nafnið sitt í hatt en svo er dregið í lið sem sýna 10 mínútna spuna. Frábær leið fyrir nýliða til að spinna meira og til að koma sér betur inn í improv samfélagið.
Ókeypis er fyrir félagsmenn Improv Ísland.
Hópaafsláttur
Vantar vinnustaðinn sprenghlægilega kvöldskemmtun?
Improv Ísland býður uppá hópafslætti fyrir meðalstóra og stóra hópa.
Fyrir frekari upplýsingar sendið póst á midasala@leikhusid.is